Lífið

Britney Spears ástfangin á ný

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Söngkonan Britney Spears er byrjuð með handritshöfundinum og framleiðandanum Charlie Ebersolsamkvæmt heimildum E! News.

Charlie þessi er sonur framleiðandans Dick Ebersol sem er einn af mönnunum á bak við skemmtiþáttinn Saturday Night Live.

Samkvæmt E! News eru Britney og Charlie búin að vera saman í nokkrar vikur.

„Þau kynntust í gegnum vini. Hann er mjög ljúfur og þau njóta þess að kynnast. Þau eru bæði mjög hamingjusöm og skemmta sér vel. Þetta er bara byrjunin og ég hef ekki hugmynd um hvort þetta verði alvarlegt en þau skemmta sér vel saman núna,“ segir heimildarmaður fréttaveitunnar.

Aðeins eru tveir mánuðir síðan Britney hætti með David Lucado en þau byrjuðu saman snemma árs 2013. Fyrir það var Britney trúlofuð Jason Trawick í rúmlega ár en þau hættu saman í janúar í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×