Lífið

Will Smith tekur myndir af eiginkonu sinni þegar hún sefur

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Leikarinn Will Smith og leikkonan Jada Pinkett Smith hafa verið gift í sautján ár en leikkonan deildi leyndarmáli með fylgjendum sínum á Facebook um helgina.

Jada birti mynd af nöktu baki sínu og skrifaði við myndina að Will taki oft myndir af henni þegar hún sefur.

„Ég komst að kynþokkafullu leyndarmáli um daginn. Eiginmaður minn tekur myndir af mér þegar ég sef. Hann á heilt safn sem hann sagði mér frá og ég nýt þess að sjá sjálfa mig með augum hans. Ég varð að deila þessari með ykkur,“ skrifar Jada.

Will og Jada eiga soninn Jaden, 16 ára og dótturina Willow, 14 ára saman en um árabil hafa verið sögusagnir á kreiki um að hjónaband þeirra standi á brauðfótum. Þau hafa hins vegar þverneitað því.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×