Lífið

Skilin eftir þrettán ára hjónaband

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Angie og Jason.
Angie og Jason. vísir/getty
Leikkonan Angie Harmon er skilin við eiginmann sinn til þrettán ára, Jason Sehorn. Parið á þrjár dætur saman, Finley, 11 ára, Avery, 9 ára og Emery, 5 ára. 

Samkvæmt heimildum tímaritsins Us Weekly var skilnaðurinn búinn að vera lengi í bígerð. 

„Stór hluti af þessu er að það er virkilega erfitt þegar þú sérð ekki maka þinn í fimm eða sex mánuði á ári,“ segir heimildarmaðurinn.

„Fyrst um sinn söknuðu þau hvors annars en síðan fundu þau taktinn þar sem önnur manneskjan tekur á sig mikla ábyrgð í foreldrahlutverkinu á meðan hin vinnur,“ bætir heimildarmaðurinn við. Það endaði þannig að Jason var meira heima með börnin og það hafi skapað spennu í sambandinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×