Bíó og sjónvarp

Tökum lokið á Fifty Shades of Grey

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
E.L. James tísti þessari mynd þegar tökum lauk. Hér er hún ásamt leikstjóra myndarinnar, Sam Taylor-Johnson.
E.L. James tísti þessari mynd þegar tökum lauk. Hér er hún ásamt leikstjóra myndarinnar, Sam Taylor-Johnson.
Tökum á kvikmyndinni Fifty Shades of Grey, sem byggð er á samnefndri skáldsögu eftir E.L. James, lauk á föstudaginn. E.L. James tilkynnti það á Twitter-síðu sinni.

Leikkonan Dakota Johnson og leikarinn Jamie Dornan leika aðalhlutverkin í myndinni, þau Anastasiu Steele og Christian Grey.

Tökur hafa staðið yfir í Kanada síðustu vikur en myndin verður frumsýnd vestan hafs á Valentínusardaginn á næsta ári.

Plakat myndarinnar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.