Lífið

Skilin eftir átta ára hjónaband

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tónlistarmaðurinn Robin Thicke og leikkonan Paula Patton eru skilin eftir átta ára hjónaband. Heimildarmenn tímaritsins Us Weekly segja parið hafa rætt skilnað um langa hríð.

„Þetta er ekki áfall fyrir Robin né Paulu og þetta er eitthvað sem þau hafa rætt lengi.“

Robin og Paula eiga saman soninn Julian, þriggja ára.

Sögusagnir um erfiðleika í hjónabandinu fóru á kreik í ágúst eftir að Robin tróð upp á VMA-hátíðinni með Miley Cyrus. Þá sögðu sögurnar einnig að Robin hefði haldið framhjá Paulu í teiti í lok ágúst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.