Lífið

Rúmir tveir klukkutímar með Timberlake

Ellý Ármanns skrifar
myndir/einkasafn
Þórunn Högnadóttir ritstjóri Home magasín fór á tónleika í desember síðastliðnum með Justin Timberlake í Orlando á Florída með fjöskyldunni. Justin boðaði komu sína til Íslands í morgun en hann heldur tónleika í Kópavogi 24. ágúst næstkomandi.

símamynd Þórunnar
„Við fjölskyldan fórum til Florída núna um síðustu jól. Það var engin spurning þegar við fréttum að hann væri með tónleika að við myndum fara,“ segir Þórunn. 

Birgitta Líf 13 ára dóttir Þórunnar með mömmu á tónleikunum.
„Okkur hefur alltaf langað til að sjá hann „live“ og hann stóðst svo sannarlega undir væntingum. Hann er frábær söngvari, dansari og skemmtikraftur. Þetta var þvílíkt flott „show“ sem stóð yfir í tvo og hálfan klukkutíma.“

Justin hélt tónleika 19. desember í Amway Center í Orlando. Þórunn myndaði kappann eins og sjá má.
Ætlið þið að sjá hann þegar hann kemur til Íslands? 

„Já ég held að maður verði bara að láta sjá sig aftur í Kórnum í ágúst,“ segir Þórunn.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.