Ná Stólarnir fyrstu Suðurnesjaþrennunni í tæp 23 ár? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. desember 2014 16:45 Pétur Rúnar Birgisson. Vísir/Valli
Tindastólsmenn heimsækja Grindvíkinga í kvöld í lokaleik áttundu umferðar Dominos-deildar karla í körfubolta en þetta verður fimmti Mánudagsleikurinn í vetur sem verður sendur út í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Leikurinn fer fram í Röstinni í Grindavík og hefst hann klukkan 19.15. Sjónvarpsútsending Stöðvar 2 Sport hefst klukkan 19.00. Tindastóll hefur unnið sex af fyrstu sjö leikjum tímabilsins og þar á meðal 11 stiga sigur á Njarðvík (86-75) og 13 stiga sigur á Keflavík (97-74). Stólarnir eiga því möguleika á því að ná Suðurnesjaþrennunni í kvöld. Það þarf að fara tæp 23 ár aftur í tímann til að finna Suðurnesjaþrennu hjá Tindastól á einu tímabili í úrvalsdeild karla. Stólarnir unnu síðast Suðurnesjaliðin þrjú í einni röð í febrúar 1992. Tindastóll vann þá Keflavík 5. febrúar (74-72, heima), Grindavík 9. febrúar (97-94, úti) og loks Njarðvík 28. febrúar (83-81, úti). Frá því að Stólarnir náðu þessari þrennu fyrir tæpum 23 árum hefur liðið aðeins unnið 28 af 112 deildarleikjum sínum á móti Suðurnesjaliðunum þremur og þá eru meðtaldir sigurleikirnir tveir fyrr í vetur. Tindastóll fékk tvö tækifæri til að ná Suðurnesjaþrennunni tímabilið 1999-2000 en tapaði þriðja leiknum í bæði skiptin. Fyrir jól unnu Stólarnir Keflavík (93-79) og Grindavík (97-77) en töpuðu svo á móti Njarðvík (84-101). Eftir jól unnu Stólarnir Njarðvík (90-75) og Keflavík (80-67) en töpuðu svo á móti Grindavík (80-86).
Dominos-deild karla Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira