Lífið

Kaffibarinn einn af bestu skemmtistöðum í Evrópu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kaffibarinn er á lista breska blaðsins The Guardian yfir 25 bestu skemmtistaði í Evrópu. Til að vinna listann fengu blaðamenn blaðsins listamenn, plötusnúða, útgefendur og tónleikahaldara til að velja sína uppáhaldsstaði.

Það eru meðlimir hljómsveitarinnar Samaris sem gefa Kaffibarnum sitt atkvæði.

„Kaffibarinn er eins og okkar annað heimili. Þar er allt sem þarf: þar er hlýtt og kósí á virkum dögum og síðan skrítið og brjálað um helgar þar sem allir troða sér inná þennan agnarsmáa stað til að dansa kvöldið burt og hella drykkjum yfir alla,“ segir þríeykið í Samaris og bætir við að miðvikudagskvöldin séu best á barnum.

„Uppáhaldskvöldið okkar er miðvikudagskvöld þegar vínið er ódýrt og gómsætur ostur gefins.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×