Lífið

Steed Lord á Gay Pride í San Francisco

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Hljómsveitin Steed Lord, með Svölu Björgvinsdóttur í broddi fylkingar, kemur fram á aðalsviðinu á Gay Pride-hátíðinni í San Francisco 29. júní næstkomandi.

Sveitin tilkynnti þetta á Facebook-síðu sinni og segist vera ákaflega spennt fyrir að koma fram á þessum stóra viðburði.

Gay Pride-hátíðin í San Francisco er gríðarlega umfangsmikil og fór hún fyrst fram árið 1970. Á undanförnum árum hefur verið talið að um ein milljón manna sæki hátíðina með einum eða öðrum hætti.

Fjöldi þekktra listamanna hefur komið fram á hátíðinni í gegnum tíðina eins og Backstreet Boys, Lady Gaga og Chaka Khan, svo nokkur nöfn séu nefnd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.