Veiði

Nýjar tölur úr laxveiðinni

Karl Lúðvíksson skrifar
Veiðisumarið rúllar áfram og ennþá eru smálaxagöngurnar heldur litlar en þó farnar að láta sjá sig í einhverjum mæli.

Aðeins ein á er komin yfir 1000 laxa og það er Blanda með 1388 laxa, mest af svæði I en veiðin á hinum svæðunum er þó líka búin að vera ágæt og er vaxandi enda besti tíminn framundan á þeim svæðum.  Eystri Rangá er sömuleiðis í góðum málum og veiðin áþekk því sem hún var í fyrra.  Stórlaxahlutfall er ennþá mjög gott í ánni og smálaxinn sem hefur verið að mæta vel haldinn.  Annars er sorglegt að horfa niður  listann og horfa á stór nöfn meðal ánna skila lélegri veiði milli vikna.  Í nokkrum ám er þó ekki endilega fiskleysi fyrir að fara, þó vissulega sé minna af laxi en á meðalári en veiðimenn sem t.d. hafa verið við Hítará og Langá hafa kastað á hylji þar sem liggja margir laxar en þeir ekki tekið neitt sem fyrir þá hefur verið borið.  Þessi lægð er dýpri en hún var 2007 þegar veiðin í ágúst varð sérstakelga góð í mörgum ám sem voru rólegar framan tímabilinu og víst er að margir veiðimenn og leigutakar vonast eftir því að það endurtaki sig núna.  Listinn með 10 eftstu ánum frá Landssambandi Veiðifélaga er hér að neðan og listann í heild sinni má nálgast á www.angling.is





VeiðivatnDagsetningHeildarveiðiStangafjöldiLokatölur 2013
Blanda30. 7. 20141388142611
Eystri-Rangá30. 7. 2014877184797
Þverá + Kjarará30. 7. 2014747143373
Norðurá30. 7. 2014670153351
Miðfjarðará30. 7. 2014639103667
Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki.30. 7. 2014534205461
Haffjarðará30. 7. 201449062158
Laxá á Ásum30. 7. 201445421062
Selá í Vopnafirði30. 7. 201441171664
Laxá í Aðaldal30. 7. 2014407181009





×