Viðskipti innlent

Öllum skipverjum á Brimnesi sagt upp

Um það bil fjörutíu manns voru í áhöfn Brimness.
Um það bil fjörutíu manns voru í áhöfn Brimness. Vísir/Anton Brink
Ölllum skipverjum á frystitogaranum Brimnesi RE var sagt upp í gær. Leita á verkefna fyrir skipið erlendis og er Grænland eitt þeirra landa sem horft er til. Þar í landi er kveðið á um að allir undirmenn verði að vera grænlenskir.

Það er útgerðarfyrirtækið Brim hf, sem gerir Brimnesið út, en stutt er síðan að það skráði líka frystitogarann Skálaberg í Grænlandi. Skálabergið hefur aldrei stundað veiðar hér við land eftir að það var keypt hingað í fyrra.

Tvær áhafnir eru á Brimnesi, eða um það bil 40 manns og rær hvor áhöfn annan hvern túr.

Uppfært klukkan 13:



Brim hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna málsins. Hana má lesa hér að neðan.

Brim hf. hefur sagt upp öllum skipverjum á frystitogaranum Brimnesi RE 27, sem er 2.848 tonna frystitogari sem gerður er út frá Reykjavík. Brimnesið er nýjasti og stærsti frystitogari Íslendinga og var smíðaður í Noregi árið 2003.

40 manns eru í áhöfn skipsins. Árið 2013 var aflaverðmæti skipsins 2.680 milljónir króna og laun og launategnd gjöld voru 1.028 milljónir króna.

Rekstrargrundvöllur frystitogara hefur breyst mikið á undanförnum árum (sjá heimasíðu Brims hf. www.brimhf.is ) en með gríðarlegri hækkun veiðigjalda á síðustu árum hefur rekstrargrundvöllur þessara skipa brostið að mati Brims hf.

Á síðasta ári voru veiðigjöld Brimnes um það bil 10% gjald af aflaverðmæti skipsins. Þegar aðstöðugjald var lagt niður á Íslandi þá var það um það bil 1,5% af veltu fyrirtækja og þótti hátt þá.

Brim hf. mun leita að verkefnum fyrir skipið erlendis þar sem félagið sér ekki breytingar í vændum hér á landi í rekstrarumhverfi þessara skipa.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×