Lífið

Íslensk YouTube-stjarna með milljón áhorf

Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar
Steinunn Anna Svansdóttir er sextán ára Hafnfirðingur, sem fyrir nokkrum árum gekk í gegnum erfiða tíma.

Hún lét það ekki draga úr sér og fór að búa til myndbönd sem hún birti inni á YouTube. Til vinnslunnar notaði hún iPad sem hún fékk í fermingjargjöf og fljótlega fór boltinn að rúlla.

Í dag er Steinunn með rúmlega 53.000 fylgjendur á síðunni sinni, sem heitir BornToBeFighter. Alls hefur verið horft sex milljón sinnum á myndböndin hennar og er hún farin að þéna vel á meðan hún skemmtir sér við vinnsluna.

Steinunn æfir einnig hópfimleika með Stjörnunni og er í landsliðinu. Þá er hún vinsæl á Instagram þar sem ríflega 20 þúsund manns fylgja henni.

Hér fyrir neðan má sjá eitt af vinsælustu myndböndum Steinunnar, "Thrift Shop" Fan Video.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.