Veiði

Síðasta holl í Affallinu með 18 laxa

Karl Lúðvíksson skrifar
Sigurður Sveinsson með fallegan lax sem veiddist í síðasta holli í Affallinu
Sigurður Sveinsson með fallegan lax sem veiddist í síðasta holli í Affallinu
Affallið í Landeyjum er loksins komið í góðann gír og það sannast best á hækkandi veiðitölum en síðasta holl gerði fína veiði við ánna.

Alls náði hollið 18 löxum á 4 stangir ásamt því að sjá meira af laxi víða í ánni og inná milli voru mjög fallegir tveggja ára laxar.  Affallið hefur stundum farið fyrr af stað en lok júlí hefur yfirleitt markað upphafið á besta tímanum í ánni sem síðan varir þangað til veiði líkur í haust.  Lax er að ganga í báðar Rangárnar, Affall og Þverá í Fljótshlíð langt fram eftir hausti og stundum má gera bestu veiðina þar í lok september og í byrjun október það er því nóg eftir af veiðitímanum þarna og engin leið að spá fyrir um framhaldið annað en að það virðist vera gott.  Hollin í Þverá hafa líka gert fína veiði og síðasta holl náði 7 löxum sem er ágætt miðað við rólega ástundun í ánni.  Lax er orðinn vel dreifður um ánna og laxar farnir að veiðast á efsta veiðistaðnum en þar safnast oft saman mikið af laxi sem fer hratt upp ánna suma dagana.






×