Lífið

Nýfæddur sonur fékk Arsenal-teppi

Freyr Bjarnason skrifar
Lárus Jón Björnsson ásamt syni sínum, sem er að sjálfsögðu með Arsenal-teppið yfir sér.
Lárus Jón Björnsson ásamt syni sínum, sem er að sjálfsögðu með Arsenal-teppið yfir sér. Vísir/Vilhelm
Hinn nýbakaði faðir og aðdáandi enska knattspyrnuliðsins Arsenal, Lárus Jón Björnsson, tók sig til og prjónaði Arsenal-teppi handa syni sínum, sem kom í heiminn á annan í jólum. Teppið hafði hann setið sveittur við að prjóna í hálft ár.

„Ég klára sjúkraþjálfun í Háskólanum í vor en var að vinna í sumar í Hlíðabæ, sem er dagheimili fyrir heilabilaða,“ segir Lárus Jón, spurður út í teppið. „Þar var mikil prjónamenning og á meðan ég horfði á alla þar vera að prjóna hugsaði ég að ég þyrfti að finna mér eitthvert verkefni fyrir litla sem var á leiðinni. Þá stakk ein upp á að ég gæti gert barnateppi. Ég greip það á lofti og bað um besta garnið,“ bætir hann við.

Til að koma sér af stað í prjónamennskunni fékk Lárus Jón aðstoð frá fólkinu í Hlíðabæ, tengdamóður sinni og kærustu. Einnig fékk hann aðstoð frá þeim þegar hann var alveg við það að bugast. "Ég ætlaði að klára þetta á meðan ég var í sumarvinnunni, sem var frá júní til loka ágúst en svo var ég bara að klára þetta núna fyrir tveimur vikum. Ég er ekki viss um að ég hefði gert þetta ef ég hefði vitað hvað ég yrði ógeðslega lengi að þessu.“

Eitt sinn tók hann sér nokkurra vikna pásu frá prjónaskapnum og hugsaði sinn gang. „Ég íhugaði hvort ég ætti að hætta eða ekki en svo ákvað ég að taka hörkuna á þetta og keyra þetta í gegn með dyggri aðstoð náinna.“

Sonur Lárusar Jóns kom svo í heiminn á annan í jólum og að sjálfsögðu var hann umsvifalaust vafinn inn í teppið. „Teppið fylgir honum og hann fylgir teppinu. Hann er eiginlega fastur við það.“

Eins og gefur að skilja er Lárus Jón harður Arsenal-maður. „Mér tókst að gera konuna að Arsenal-manni en hún er úr West Ham-fjölskyldu,“ segir hann og efast stórlega um að annað komi til greina hjá syninum en Arsenal í framtíðinni.

„Fyrsti leikurinn hans var í gær [á sunnudag] á móti West Ham [sem fór 1:2 fyrir Arsenal] og hann fagnaði sigrinum með því að gráta hástöfum, með teppið vafið utan um sig. Hann var örugglega að syngja einhverja Arsenal-söngva í gegnum grátinn.“

Þrátt fyrir að teppið hafi heppnast vel ætlar Lárus að láta þar við sitja og reiknar ekki með því að prjóna Arsenal-vettlinga á næstunni. Í staðinn vonar hann að teppið verði notað innan fjölskyldunnar um ókomin ár. „Það væri gaman ef teppið helst saman ef maður eignast kannski fleiri börn og þau eignast svo börn,“ segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×