Harmageddon

10 ráð til að eiga ánægjulegra kynlíf

Katrín og Anna Tara skrifar
Ert þú búin/nn að finna "the one"?
  1. Takið tímann á því hvað þið eruð lengi að fá það hvort fyrir sig og hvað fullnægingin stendur lengi yfir, þetta er samkeppni.

  2. Farðu í sturtu og helltu svo 5kg af sykri yfir þig, þannig verðuru sykursæt/ur.

  3. Farðu í Google history hjá maka þínum og finndu út hvernig klám maki þinn horfir á, þá veistu hvað hann vill í rúminu.

  4. Gerðu nokkrar söngæfingar og hitaðu upp röddina til að geta stunið í akkúrat réttri tóntegund.

  5. Hringdu í fyrrverandi kærasta/kærustur og spurðu hvað maki þinn vill í rúminu þannig kemur þú út sem meistari sem lest hugsanir.

  6. Talið sem minnst saman, það nennir enginn að hlusta á eitthvað blaður í rúminu.

  7. Reyndu að bregða maka þínum sem oftast í kynlífi, það er sannað að adrenalín er gott í kynlífi.

  8. Skrifið bæði leiðbeiningabækling og gefið hvort öðru, helst á þriðja deiti.

  9. Gerðu hálsæfingar í háltíma á dag þannig geturu sveiflað hárinu á mjög kynþokkafullan hátt.

  10. Stelpur eftir að þið eruð búnar að fá það ekki skilja hann útundan. Leyfið honum líka að fá það.







×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.