Lífið

Henni var kennt að hata mig

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Leikstjórinn Woody Allen birti svar sitt við bréfi dóttur sinnar, Dylan Farrow, á bloggvef New York Times á föstudagskvöldið.



„Að vera kennt að hata föður sinn og að hún hafi verið látin trúa því að hann hafi misnotað hana hefur nú þegar tekið sálfræðilegan toll á þessa yndislegu, ungu stúlku. Nú eru liðin 21 ár og Dylan kemur fram með ásakanir sem sérfræðingar í Yale rannsökuðu og komust að þeirri niðurstöðu að þær væru rangar. Nú er búið að bæta við nokkrum atriðum sem virðast hafa orðið til fyrir töfra á meðan við höfum ekki talast við í þetta 21 ár,“ skrifar Woody. Leikstjórinn telur fyrrverandi eiginkonu sína og móður Dylan, leikkonuna Miu Farrow, bera ábyrgð á þessum meinta óhróðri.



„Ég efast ekki um að Dylan trúi því að ég hafi misnotað hana en þegar sterk móðir er búin að kenna sjö ára viðkvæmu barni að hata föður sinn því hann sé skrímsli og hafi misnotað hana er þá svo óhugsandi að eftir svona mörg ár af því að Mia hafi innrætt þessa ímynd af mér í huga hennar að þessi ímynd hafi skotið rótum?“ bætir Woody við. Mia og Woody skildu árið 1992 eftir að Mia komst að því að Woody væri byrjaður með ættleiddri dóttur hennar, Soon-Yi Previn.

Bréf Dylan hefur vakið mikla athygli.

„Hann tók dóttur mína, nú tek ég hans“



„Mia fékk forræði yfir börnunum og við fórum sitt í hvora áttina. Ég var miður mín. Moses var reiður út í mig. Við Ronan þekktumst ekki vel því Mia vildi aldrei leyfa mér að vera nálægt honum frá því að hann fæddist og Dylan, sem ég dýrkaði og var mjög náinn en Mia hringdi í systur mína í brjálæðiskasti og sagði með vísan í Dylan: „Hann tók dóttur mína, nú tek ég hans.“ Soon-Yi og ég vonum að einn daginn muni hún skilja hver hefur gert hana að fórnarlambi og hafi samband við okkur á ný eins og Moses hefur gert á ástríkan og árangursríkan hátt.“



Woody segir enn fremur aldrei hafa misnotað Dylan uppi á lofti á heimili Miu í Connecticut eins og Dylan lýsir í bréfi sínu. Ber hann fyrir sig að hann sé hræddur við lítil rými.



„Jafnvel staðsetning þar sem þessa uppspunna misnotkun átti að hafa átt sér stað var illa valin en áhugaverð. Mia valdi háaloft sveitahússins síns, staður sem hún veit að ég myndi aldrei fara á þar sem hann er lítill, þröngur staður þar sem varla er hægt að standa uppréttur og ég er með innilokunarkennd á háu stigi,“ skrifar Woody.



„Auðvitað misnotaði ég ekki Dylan. Ég elskaði hana og ég vona að hún muni skilja einn daginn að búið er að svíkja hana um að eiga ástríkan föður og að hún hafi verið misnotuð af móður sem hefur meiri áhuga á sinni eigin reiði en velferð dóttur sinnar.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.