Veiði

Vel heppnaðar tilraunaveiðar í Víðidalsá

Karl Lúðvíksson skrifar
Stjáni Ben með flottann sjóbirting úr Víðidalsá
Stjáni Ben með flottann sjóbirting úr Víðidalsá
Vorveiði hefur hingað til ekki verið stunduð í Víðidalsá sem er eiginlega furðulegt í ljósi þess að í ánna gengur nokkuð af sjóbirting.

Þeir Valgarður Ragnarsson og Stjáni Ben fóru þangað til að kanna nokkra veiðistaði og sjá hversu álitlegt þetta er fyrir vorveiði en í sömu ferð voru einnig prófaðar nýjar stangir fyrir sumarið.  "Þeir staðir sem okkur þóttu líklegastir voru að mestu undir ís en í Harðeyrarstreng fundum við fiska, mest urriða á bilinu 40-65 sm" sagði Stjáni Ben þegar við heyrðum frá þeim.  Þeir eyddu um tveimur tímum við Harðeyrarstreng og á þeim tíma lönduðu þeir 10 fiskum og tveimur hoplöxum.  Að sögð Stjána voru urriðarnir í góðum holdum sem er gott merki um að hann hafi það gott í vetursetunni í ánni.  "Mest veiddum á Dýrbít með gúmmilöppum sem er mín uppáhaldsfluga en við fengum líka fiska á Egg Sucking Leech" bætti Stjáni við.  Þeir félagar eru svo á leið í Húseyjarkvísl í Skagafirði en Valgarður er einmitt leigutaki hennar.  Við fáum vonandi fréttir af þeim fljótlega og það verður gaman að sjá hvernig Húseyjarkvísl kemur undan vetri.



 





×