Körfubolti

Pavel tryggði KR sigur í Garðabænum - úrslitin í karlakörfunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pavel Ermolinskij.
Pavel Ermolinskij. Vísir/Stefán
Pavel Ermolinskij tryggði KR sigur á Stjörnunni í Garðabæ í Dominos-deild karla í kvöld þegar hann skoraði sigurkörfuna skömmu fyrir leikslok. KR vann leikinn 78-75.

Snæfellingar enduðu fjögurra leikja taphrinu með góðum heimasigri á Haukum, ÍR-ingar skelltu Íslandsmeisturum Grindavíkur í Hertz hellinum í Seljaskóla og Reykjanesbæjarliðinu unnu bæði örugga heimasigri.

Martin Hermannsson átti enn einn stórleikinn fyrir KR í sigrinum á Stjörnunni í Garðabæ en hann var með 23 stig og 5 stoðsendingar í leiknum. Brynjar Þór Björnsson var með 17 stig og Pavel Ermolinskij skoraði 12 stig og tók 11 fráköst.

KR var tíu stigum yfir, 75-65, þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir að leiknum en Stjörnumönnum tókst að jafna leikinn með 10-0 spretti. Pavel setti niður þrist þegar nokkrar sekúndur voru eftir og tryggði sínu liði tvö stig og toppsætið.

Nigel Moore var með 22 stig, 10 fráköst og 8 stoðsendingar fyrir ÍR í kvöld þegar liðið vann 96-94 sigur á Grindavík en Breiðholtsliðið sem vann aðeins 2 af 11 deildarleikjum fyrir áramót er búið að vinna 3 af 4 leikjum með hann í liðinu.

Travis Cohn III skoraði 27 stig og upplifði sinn fyrsta sigurleik á Íslandi þegar Snæfell vann öruggan fjórtán stiga sigur á Haukum, 96-82. Sigurður Þorvaldsson var með 25 stig og Jón Ólafur Jónsson bætti við 11 stigum, 10 fráköstum og 6 stoðsendingum. Haukur Óskarsson skoraði 18 stig fyrir Hauka.

Úrslit og stigaskorarar í leikjum kvöldsins:



Njarðvík-Þór Þ. 100-73 (23-15, 27-19, 22-23, 28-16)

Njarðvík: Tracy Smith Jr. 27/12 fráköst, Logi Gunnarsson 22/4 fráköst, Elvar Már Friðriksson 20/5 fráköst/9 stoðsendingar/5 stolnir, Maciej Stanislav Baginski 10, Ólafur Helgi Jónsson 9/7 fráköst, Hjörtur Hrafn Einarsson 9/5 fráköst, Ágúst Orrason 3.

Þór Þ.: Mike Cook Jr. 27/8 fráköst/5 stoðsendingar, Tómas Heiðar Tómasson 11, Emil Karel Einarsson 11, Nemanja Sovic 8/7 fráköst, Ragnar Ágúst Nathanaelsson 7/4 fráköst, Baldur Þór Ragnarsson 6, Halldór Garðar Hermannsson 3.



Stjarnan-KR 75-78 (20-14, 17-22, 12-18, 26-24)

Stjarnan: Matthew James Hairston 22/13 fráköst, Justin Shouse 17/5 fráköst/6 stoðsendingar, Dagur Kár Jónsson 12/4 fráköst/5 stoðsendingar, Marvin Valdimarsson 11/7 fráköst, Jón Sverrisson 8/6 fráköst/4 varin skot, Fannar Freyr Helgason 3/5 fráköst, Sæmundur Valdimarsson 2.

KR: Martin Hermannsson 23/7 fráköst/5 stoðsendingar, Brynjar Þór Björnsson 17/7 stoðsendingar, Pavel Ermolinskij 12/11 fráköst, Ingvaldur Magni Hafsteinsson 9/4 fráköst, Helgi Már Magnússon 9/5 fráköst/5 stoðsendingar, Darri Hilmarsson 5, Terry Leake Jr. 2, Jón Orri Kristjánsson 1.



Snæfell-Haukar 96-82 (29-18, 27-22, 23-19, 17-23)

Snæfell: Travis Cohn III 27/4 fráköst/7 stoðsendingar/5 stolnir, Sigurður Á. Þorvaldsson 25, Jón Ólafur Jónsson 11/10 fráköst/6 stoðsendingar, Finnur Atli Magnússon 10/9 fráköst, Stefán Karel Torfason 8/5 fráköst, Sveinn Arnar Davíðsson 6, Kristján Pétur Andrésson 5, Þorbergur Helgi Sæþórsson 4.

Haukar: Haukur Óskarsson 18/5 fráköst, Emil Barja 15/9 fráköst, Kristinn Marinósson 8/5 fráköst, Terrence Watson 8/12 fráköst, Davíð Páll Hermannsson 8, Svavar Páll Pálsson 7/4 fráköst, Þorsteinn Finnbogason 5, Kári Jónsson 4, Sigurður Þór Einarsson 4, Hjálmar Stefánsson 3, Steinar Aronsson 2.



ÍR-Grindavík 96-94 (23-26, 32-21, 27-24, 14-23)

ÍR: Nigel Moore 22/10 fráköst/8 stoðsendingar, Matthías Orri Sigurðarson 18/5 fráköst/10 stoðsendingar, Hjalti Friðriksson 17/5 fráköst, Sveinbjörn Claessen 13/5 fráköst/5 stolnir, Ragnar Örn Bragason 12, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 10/4 fráköst, Vilhjálmur Theodór Jónsson 4.

Grindavík: Earnest Lewis Clinch Jr. 25/6 fráköst/8 stoðsendingar, Ómar Örn Sævarsson 18/9 fráköst, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 11/7 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 10/4 fráköst, Þorleifur Ólafsson 9/4 fráköst, Jón Axel Guðmundsson 8, Ólafur Ólafsson 7/4 fráköst, Jens Valgeir Óskarsson 4, Kjartan Helgi  Steinþórsson 2.



Keflavík-Valur 106-92 (30-21, 20-18, 30-28, 26-25)

Keflavík: Michael Craion 30/12 fráköst, Guðmundur Jónsson 19/4 varin skot, Darrel Keith Lewis 17, Gunnar Ólafsson 15/4 fráköst, Arnar Freyr Jónsson 9/6 fráköst, Magnús Þór Gunnarsson 6, Valur Orri Valsson 5, Andri Daníelsson 5/5 fráköst.

Valur: Chris Woods 43/14 fráköst, Birgir Björn Pétursson 14/10 fráköst, Oddur Ólafsson 12, Rúnar Ingi Erlingsson 10/5 fráköst/7 stoðsendingar, Oddur Birnir Pétursson 6/9 fráköst, Benedikt Smári Skúlason 4, Benedikt Blöndal 3/7 stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×