Lífið

Sveini Andra hent af Facebook

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Sveinn Andri Sveinsson
Sveinn Andri Sveinsson
Facebook-síða lögfræðingins Sveins Andra Sveinssonar hefur legið niðri undanfarna daga. Vinir Sveins Andra eru vanir því að sjá skrif hans reglulega þar sem hann kryfur samfélagsmálin á sinn hátt. En undanfarna daga hefur lítið farið fyrir honum  á miðlinum, enda var síðunni hans lokað, eins og hann útskýrir í samtali við Vísi:

„Já, ég var skikkaður í hlé, má segja,“ segir Sveinn Andri og heldur áfram:

„Aðgangi mínum var lokað og það er eins og einhver hafi hakkað sig inn á hann. Facebook efast allavega um að Sveinn A Sveinsson sé ég. Þeir gerðu aðganginn vanvirkan og upphófst ferli þar sem ég þarf að sanna að ég ætti þennan aðgang í raun.“

Sveinn Andri var beðinn að senda afrit af tveimur skilríkjum á skrifstofu Facebook þar sem málið er tekið til skoðunnar. Hann segir að það virðist sem eitthvað óeðlilegt hafi átt sér stað. Hann hafi notað Gmail-póstfang til að skrá sig á Facebook. Hann segist ekki nota Gmail-póstþjónustuna mikið og þegar hann hafi skráð sig inn á póstinn sé nafn annars manns skráð fyrir póstssendingum hans.

„Mér fannst það forvitnilegast, við þetta allt. Þetta er alveg stórkostlega furðulegt.“

Ljóst er að einhverjir Facebook-vinir sakna þess að lesa skrif Sveins Andra. „Já, það er gott að vita að manns er saknað,“ segir hann og hlær. Hann bætir við: „Ég held samt að Liverpool-aðdáendur sakni mín ekki mikið.“

Sveinn Andri er einnig skráður á Twitter en segist ekki njóta þess að vera þar. „Nei, mér finnst það ekki skemmtilegur vettvangur. Ég vona að ég nái að endurheimta Facebook-aðganginn minn, aðallega útaf því að maður er með myndir og fleira þarna inni. En ef það gengur ekki, þá er ekkert við því að gera. Þá verður maður bara að stofna nýjan aðgang.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×