Lífið

Búið spil hjá Robin Wright og Ben Foster

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ben og Robin.
Ben og Robin. vísir/getty
Leikkonan Robin Wright er búin að slíta trúlofun við unnusta sinn til tíu mánaða, leikarann Ben Foster samkvæmt heimildum tímaritsins Us Weekly.

„Hún gleymdi sér í trúlofuninni síðustu jól en þegar varð brjálað að gera í vinnunni gerði hún sér grein fyrir að þetta var ekki rétt ákvörðun,“ segir heimildarmaður tímaritsins um ástæðu sambandsslitanna.

Þá spilaði fjórtán ára aldursmunur parsins stórt hlutverk í ákvörðun leikkonunnar.

„Bilið var á endanum of mikið. Ben var frekar óþroskaður,“ segir heimildarmaðurinn.

Ben og Robin kynntust á setti kvikmyndarinnar Rampart árið 2011 en Robin sást fyrst með trúlofunarhring á fingri í janúar á þessu ári.

Þetta hefði orðið þriðja hjónaband Robin en hún var áður gift Dane Witherspoon og Sean Penn, en með þeim síðarnefnda á hún börnin Dylan, 23 ára og Hopper Jack, 21 árs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×