Lífið

Stevie Wonder á von á þríburum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tónlistarmaðurinn Stevie Wonder á von á þríburum með kærustu sinni, Tomeeka Robyn Bracy. Þetta kemur fram á síðu Page Six.

Verður þetta níunda, tíunda og ellefta barn söngvarans sem á átta börn með fimm mismunandi konum. Tomeeka og Stevie eignuðust sitt fyrsta barn saman á síðasta ári.

Elsta barn tónlistarmannsins er 39 ára og það yngsta eins árs.

Stevie hefur verið kvæntur tvisvar, fyrst söngkonunni Syreeta Wright á árunum 1970 til 1972 og síðar hönnuðinum Kai Millard Morris á árunum 2001 til 2012.

Samkvæmt Page Six hafa Stevie og Tomeeka verið saman í rúmlega ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×