Lífið

Sjáið myndirnar: Íslendingar kunna að klæða sig upp á hrekkjavöku

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
myndir/gunnella þorgeirsdóttir
Félagsskapurinn Halloween Iceland blés til hrekkjavökuteitis á skemmtistaðnum Brikk á laugardagskvöldið.

Fjölmargir lögðu leið sína í teitið og lögðu mikinn metnað í grímubúningana eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem Gunnella Þorgeirsdóttir tók.

Veitt voru verðlaun fyrir bestu búningana og voru það Rútur Skæringur N. Sigurjónsson, Jón Gestur Björgvinsson og Glódís Tara sem hlutu þau.

Hér sjást sigurvegarar búningakeppninnar.
Björk mætti í svanakjólnum fræga.
Geggjað þríeyki úr Clockwork Orange.
Þessir félagar voru hressir.
Einn svakalegur.
Óhugnalegt!
Eðvarð klippikrumla.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×