Harmageddon

Málmhaus frumsýnd í Svíþjóð

Andri Þór Sturluson skrifar
Ragnar Bragason, leikstjóri.
Ragnar Bragason, leikstjóri.
Málmhaus er í bullandi útrás. Hún var frumsýnd í Svíþjóð í kvöld. Svo fylgja hin norðurlöndin eftir eins og dómínókubbar á næstu vikum. Fyrst þegar ég heyrði um þessa mynd þá var ég viss um að hún fjallaði um einhvern sveitastjórnarmann að berjast fyrir álveri í Helguvík en það er fjarri lagi.

Myndin er stórgóð. Of góð til að torrenta hana.

Ragnar Bragason, leikstjóri, var í Skype viðtali við vefritið Vice um myndina og tildrög hennar. Þar er hann meðal annars spurður út í það afhverju hann sem karlmaður lét konu vera aðalsöguhetju myndarinnar, sem er svo sem réttmæt spurning – fyrir tuttugu árum síðan.

Aðrar spurningar eru betri, innihalda reyndar spoilera en þetta er mynd sem allir eiga að vera búnir að sjá. Hér er smá auka innsýn inn í framleiðslu myndarinnar og hvernig hún kom til, fyrir þá sem hafa gaman af Ragnari og myndinni.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.