Mögnuð vorveiði í Varmá Karl Lúðvíksson skrifar 24. febrúar 2014 14:10
Varmá er fyrir löngu orðin vel þekkt sem ein skemmtilegasta vorveiðiáin í nágrenni Reykjavíkur og sú var tíðin að slegist var um leyfin fyrstu vikurnar í henni. Eftir mengunarslys sem varð í ánni árið 2007 hrundi eftirspurn veiðileyfa en með hreinsunarátaki náði sér á strik og gott betur en það. Stórir sjóbirtingar leynast í hyljum Varmár og veiðimenn hafa sett í fiska og séð fiska sem fullyrt er að fara jafnvel um og yfir 20 pund en á hverju ári veiðast fiskar sem eru 10 pund og stærri. Áin býr yfir fjölbreyttri flóru tegunda sem í hana ganga og þar má auðvitað fyrst nefna sjóbirting en einnig er þar að finna staðbundin urriða, sjóbleikju, staðbundna bleikju, lax og stöku ál sem sést mest á neðstu svæðunum í ánni. Eingöngu er veitt á flugu og dagskvótinn er einn fiskur en eftir að honum er náð má veiða og sleppa að vild. Mest er veitt á straumflugur fyrstu dagana en einnig veiðist vel á púpur. Þegar líður á tímabilið er einnig mikið veitt á þurrflugu og eru sumir veiðistaðirnir á neðri hlutanum sérstaklega skemmtilegir með þurrflugu að vopni. Veitt er á 6 stangir í ánni og er veiðisvæðið um 20 kílómetra langt svo það er nóg af plássi fyrir alla. Fyrstu mistökin sem margir gera þarna er að fara í Stöðvarhylinn og hanga þar. Þar er vissulega mikið af fiski en þegar þú ert búinn að fá 3-4 er hylurinn oft og iðullega sprunginn. Fyrir neðan og fyrir ofan Stöðvarhyl er örstutt labb í veiðistaði sem eru ekkert síðri og geyma líka fiska. Besta ráðið til að veiða ánna er að stoppa ekki mikið meira en klukkutíma á hverjum stað. Það eykur líkurnar á því að þú finnir fisk sem ekki hefur verið kastað á og vonandi finnur þú einn af þessum stóru skuggum sem sjást reglulega þarna. Ef þú setur í einn slíkann áttu ekki eftir að gleyma því í bráð.
Stangveiði Mest lesið Mest sótt um Elliðaárnar Veiði 100 laxar komnir á land á svæði II og III í Blöndu Veiði Fyrsti laxinn kominn úr Jöklu Veiði Má skjóta bleikju með haglabyssu? Veiði Besti tíminn laus í Soginu Veiði Frábærir lausir veiðidagar hjá SVFR Veiði 11 kílóa urriði úr Þingvallavatni Veiði Veiði hafin í Laxá í Mý Veiði Kofinn fluttur frá Hrunakróki Veiði Gæsirnar streyma enn inn á Gunnarsholti Veiði