Lífið

Útvarpið fært á danssviðið

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Nadja Hjorton, Zoë Poluch, Jessyka Watson-Galbraith og Halla Ólafsdóttir fá innblástur í hljóðveri Ríkisútvarpsins.
Nadja Hjorton, Zoë Poluch, Jessyka Watson-Galbraith og Halla Ólafsdóttir fá innblástur í hljóðveri Ríkisútvarpsins. vísir/vilhelm
Lokadagur hátíðarinnar Reykjavík Dance Festival er í dag og er boðið upp á dagskrá frá morgni til kvölds. Í Tjarnarbíói klukkan átta verður dansverkið On Air sýnt þar sem útvarpsmiðillinn er rannsakaður.

„Við höfum áhuga á að taka aðra miðla inn í danssýninguna. Við viljum skoða hvernig dans gæti verið en ekki fara eftir fyrir fram ákveðnum hugmyndum um hvað dans á að vera,“ segir Halla Ólafsdóttir, dansari og kóreógrafer. „Það eru ákveðnir hlutir sem hægt er að gera í gegnum útvarp sem ekki er hægt að gera öðruvísi, það er þessi tenging við áheyrendur.“

Verkið er eftir Nödju Hjorton en ásamt þeim Höllu dansa Zoë Poluch og Jessyka Watson- Galbraith í verkinu. Þær eru allar dansarar og kóreógraferar, en Halla segir það vera annað en að vera danshöfundur og biður því um að rétt orð sé notað. „Kóreógraf merkir að skrifa hreyfingu og þarf því ekki endilega að vera tengt dansi. Alveg eins og arkitektinn teiknar ekki endilega hús.“

Dagurinn mun þó hefjast á heitapottsumræðum í Sundhöll Reykjavíkur klukkan tvö þar sem listamenn og áhorfendur geta spjallað saman um það sem hefur átt sér stað á hátíðinni. Um kvöldið verða svo sýnd þrjú verk og verður hátíðinni slaufað með lokapartýi sem Hlynur Páll Pálsson býður alla velkomna í.

„Í síðasta lokapartýi hátíðarinnar ætlaði þakið að rifna af húsnæðinu og við munum reyna að toppa það. Enda er markmiðið með hátíðinni ekki einungis að fólk horfi á dans heldur líka að fá fólk út á gólfið og dansa. Það er meira að segja í stefnuskránni,“ segir Hlynur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×