„Ég hefði rekið hann út af þótt ég hefði séð þetta frá bílastæðinu“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. febrúar 2014 07:15 Frákast Hairston er fjölhæfur leikmaður sem hefur reynst Stjörnunni vel. Fréttablaðið/Valli „
Þetta er bara eins og maður bjóst við,“ segir Teitur Örlygsson, þjálfari karlaliðs Stjörnunnar. Bandaríkjamaðurinn Matthew James Hairstonvar í gær úrskurðaður í tveggja leikja bann fyrir olnbogaskot í leik gegn Skallagrími fyrir tíu dögum. Hairston fékk aðeins óíþróttamannslega villu í leiknum en dómari leiksins viðurkenndi fyrir aganefnd að hefði hann haft annað sjónarhorn hefði brottrekstrarvilla orðið niðurstaðan. „Ég hefði rekið hann út af þótt ég hefði séð þetta frá bílastæðinu. Þetta verðskuldaði það mikið leikbann,“ segir Teitur. Hann setur þó spurningarmerki við störf aganefndar sem virðist að einhverju leyti taka ákvarðanir sínar út frá geðþótta. Athygli vakti á dögunum þegar Ragna Margrét Brynjarsdóttir, leikmaður Vals, gaf leikmanni Snæfells olnbogaskot. Ragna var ekki rekin af velli og kærði dómaranefnd atvikið til aganefndar. Um keimlík mál var að ræða en Ragna Margrét slapp með skrekkinn. Teitur ítrekar að bann Hairston hafi verið verðskuldað. „Viljum við ekki allir að rétt sé bara rétt?“ segir þjálfarinn. Hairston missir af næstu tveimur leikjum Stjörnunnar gegn Haukum og Grindavík.
Dominos-deild karla Mest lesið „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Körfubolti Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ Körfubolti „Ég trúi þessu varla“ Sport Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Körfubolti Gylfi orðinn Víkingur Íslenski boltinn „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Enski boltinn Carragher kallaði Ferdinand trúð Enski boltinn Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Enski boltinn Fleiri fréttir „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ „Þetta er eins og að vera dömpað“ Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Uppselt á körfuboltalandsleikinn á morgun Ruglaðist á Tramadol og Toradol og féll á lyfjaprófi Slagur um stól formanns KKÍ LeBron með fjörutíu stig í fjarveru Doncic: „Hann storkar lögmálunum“ Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Bætti skólamet pabba síns Undrið Wembanyama frá það sem eftir lifir leiktíðar Martin: Skemmtilegra að tryggja þetta fyrir fullri höll Uppgjör: Ungverjaland - Ísland 87-78 | Afleitur annar leikhluti mjög dýr Verður aðeins sá átjándi til að spila níutíu landsleiki Gætu tryggt EM sætið í kvöld: „Skrítin staða að vera í“ Fimm sigrar og eitt grátlegt tap í síðustu sjö landsleikjum Martins Fóturinn tekinn af körfuboltapabbanum kjaftfora Geta fagnað EM sæti þrátt fyrir tap: Fjórar leiðir inn á EM Sjá meira