Bíó og sjónvarp

Marteinn Þórsson leikstýrir Glæpnum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kvikmyndafyrirtækið Tenderlee MPC hefur tryggt sér kvikmyndarétt skáldsögunnar Glæpurinn - Ástarsaga eftir Árna Þórarinsson.

Tenderlee á að baki kvikmyndir á boð við Rokland og XL en Árni er líklega best þekktur fyrir bækur sínar um rannsóknablaðamanninn Einar. Marteinn Þórsson skrifar handrit myndarinnar auk þess að leikstýra en ráðgert er að hún verði tekin upp 2015.

Þeir Árni og Marteinn auk Jóhanns Páls Valdimarssonar, útgefenda Glæpsins, hafa undirritað samning um sölu kvikmyndaréttarins á skrifstofu Forlagsins en mikil tilhlökkun er í herbúðum allra aðila.

Sagan gerist í einn örlagaríkan vordag í Reykjavík, á átján ára afmælisdegi Fríðu. Þennan sama dag höfðu foreldrar hennar lofað að upplýsa hana um leyndarmálið sem sundraði fjölskyldunni. Fortíðin birtist okkur smám saman í afturlitum og hrikalegur sannleikurinn kemur í ljós. Mun fjölskyldan sameinast þegar degi tekur að halla eða hafa örlögin þegar spunnið þeim vef?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.