Lífið

Paltrow með pop up-verslun

Gwyneth Paltrow hefur opnað sína eigin pop up-verslun.
Gwyneth Paltrow hefur opnað sína eigin pop up-verslun. Vísir/Getty
Leikkonan Gwyneth Paltrow hefur opnað pop-up verslun í borginni Dallas.

Iron Man-leikkonan hefur verið dugleg við að gefa góð ráð á vefsíðu sinni Goop allt frá árinu 2008, en núna hefur hún ákveðið að ganga skrefi lengra og opna verslun.

Goop-verslunin var opnuð á mánudaginn og verður opin til fjórtánda desember næstkomandi.

Þar verða fáanlegar alls kyns vörur frá þekktum fatahönnuðum á borð við Stellu McCartney, Calvin Klein og Monique Lhuillier.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×