Bíó og sjónvarp

Halo-bíómynd í tökum á Íslandi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Plakat kvikmyndarinnar Halo 4: Forward Unto Dawn frá árinu 2012.
Plakat kvikmyndarinnar Halo 4: Forward Unto Dawn frá árinu 2012.
Kvikmyndin Sepia, sem byggð er á tölvuleiknum Halo, er nú í tökum á Íslandi samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Heimildir blaðsins herma einnig að íslenska framleiðslufyrirtækið Pegasus aðstoði tökuliðið sem telur um 150 manns, bæði heimamenn og erlenda fagmenn.

Myndin er tekin upp á Suðurlandi að einhverju leyti og verður tökuliðið að störfum hér á landi í þrjár vikur samkvæmt heimildum blaðsins. Á blaðamannafundi Microsoft, sem á Halo, fyrir stuttu kom fram að kostnaður við myndina yrði meira en tíu milljónir Bandaríkjadala, rúmur milljarður króna. Er myndin því stór á íslenskan mælikvarða.

Leikstjóri myndarinnar er Sergio Mimica-Gezzan, sem leikstýrði nokkrum þáttum af Battlestar Galactica, Prison Break og Heroes. Handritshöfundur er Paul Scheurig sem skrifaði handrit nokkurra þátta af Prison Break.

Myndin er framleidd af Scott Free Productions sem er í eigu stórleikstjórans Ridleys Scott. Tökur á myndinni fóru einnig fram á Norður-Írlandi fyrir stuttu en myndin lítur dagsins ljós í lok þessa árs samkvæmt vefsíðunni Collider.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.