Lífið

Þjóðþekktir einstaklingar létu sjá sig

Ellý Ármanns skrifar
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var margt um manninn á kosningamiðstöð Samfylkingarnar að Brautarholti um helgina. Hátt í 400 manns kíktu við og fengu sér vöfflur, pylsur og kaffi.  Skemmtiatriði voru í höndum Elínar Ey, og Sirkúss Íslands. Fjölmargir þjóðþekktir einstaklingar létu sjá sig. 

Dagur B. Eggertsson var hinsvegar fjarri góðu gamni en hann stóð við loforð sitt um að fylgja Pollapönkurum í aðalkeppni Eurovision. Degi var þó varpað á vegg og með hjálp tækninnar var hann í beinu sambandi við gestina á skype sem vakti mikla lukku.

Smelltu á efstu mynd í frétt til að skoða allar myndirnar í heild sinni.

Hrefna Björk Sverrisdóttir.mynd/birta rán
Jóhanna Sigurðardóttir og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir.mynd/birta rán
Log Pedro Stefánsson.mynd/birta rán
Teitur Atlason.mynd/birta rán





Fleiri fréttir

Sjá meira


×