Lífið

Kennir fólki að setja vínglös í uppþvottavélina og flysja kartöflur með klósettbursta

Hér má sjá manninn sem kallar sig Crazy Russian Hacker.
Hér má sjá manninn sem kallar sig Crazy Russian Hacker.
Hann kallar sig Crazy Russian Hacker og heldur úti vinsælli síðu á Youtube. Hann er með um þrjár og hálfa milljón áskrifenda og horft hefur verið á myndböndin hans í 430 milljónir skipta. Á síðunni kennir hann fólki fólki ýmis leyndarmál sem nýta má í dagsdaglegu lífi. Hann vakti til dæmis mikla athygli þegar hann sýndi hvernig mætti flysja kartöflur með klósettbursta:





Í einu af nýjustu myndböndunum, sem kom á vefinn í síðustu viku, sýnir hann meðal annars hvernig má festa vínglös í uppþvottavélinni, svo þau séu ekki laus í vélinni. Þetta er vandamál sem líklega margir glíma við. Í myndbandinu sýnir hann einnig hvernig má halda rafmagnssnúrum á heimilinu aðskildum og hvernig búa má til kaffi án þess að eiga kaffivél:





Vinsælasta myndband hans sýnir hvað gerist ef Coca Cola er soðið. Það myndband kom á vefinn í sumar og hefur verið horft á það í tuttugu og eina milljón skipta.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×