Veiði

Mokveiði í heiðarvötnunum

Karl Lúðvíksson skrifar
Góð veiði er búin að vera á heiðunum síðustu daga
Góð veiði er búin að vera á heiðunum síðustu daga Mynd: EMK
Veiðimenn fjölmenna við heiðarvötnin þessa dagana enda hafa hlýindi síðustu daga mjög góð áhrif á tökugleðina hjá silungnum.

Þeir veiðimenn sem við höfum heyrt í segja allir sömu söguna, veiðin er búin að vera frábær á heiðunum og fiskurinn er mun vænni en í fyrra.  Vötnin á Skagaheiði hafa verið mjög gjöful þótt mest sé veitt í þeim þar sem aðgengi er gott.  Einn hópur vaskra manna fór í Ölvesvatn, Neðstavatn, Efra Nesvatn og Hraunsvatn í vikunni og höfðu um 250 fiska eftir 2 daga veiði á 4 stangir og allt var þetta tekið á flugu.  Takan kom í skotum en mest veiddist milli klukkan 5 og 10 á morgnana og síðan aftur eftir 9 á kvöldin.  Nokkur umferð hefur verið á svæðinu um helgar þannig að þeir sem eiga kost á því að fara á virkum degi fá meira pláss til að athafna sig.

Á Arnarvatnsheiði er líka búin að vera góð veiði og menn yfirleitt sammála um að fiskurinn sé vænni en í fyrra og mun meira virðist vera af fiski.  Veiðihópur sem veiddi á heiðinni á miðvikudag og fimmtudag gerði góða veiði með um það bil 140 fiska á 5 stangir en þeir hættu veiðum um miðjan seinni daginn því frauðplastkassarnir voru orðnir fullir og vel það.  Mest veiddu þeir í  Arnarvötnum, Úlfsvatni, Hlíðarvatni og Krummavatni en kíktu einnig í nokkur önnur en í styttri tíma þar sem veiðin í hinum vötnunum hélt mönnum vel við efnið.

Veiði hófst í Veiðivötnum í fyrradag og af því sem við höfum heyrt er búin að vera reytingsveiði og eins og venjulega veiðisti mest í Litla Sjó enda er það vatn stundað mest á þessu svæði.  Vötnin sunnan Tungnár eru minna stunduð en við höfum þó heyrt af ágætri veiði í Frostastaðavatni þar af einum veiðimanni sem tók 10 bleikjur fyrir fáum dögum og þar af tvær sem voru um 5 pund.






×