Lífið

Sektaður um níu þúsund krónur

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikarinn Chris Pine mætti fyrir rétt í Ashburton á Nýja-Sjálandi í dag.

Chris var handtekinn aðfaranótt 1. mars fyrir að keyra undir áhrifum áfengis. Hann hefur verið á Nýja-Sjálandi síðustu vikur við tökur á myndinni Z for Zachariah og lyfti sér upp ásamt fyrirsætunni Írisi Björk Jóhannesdóttur þann 1. mars til að fagna því að tökum væri lokið.

Chris sagðist vera sekur í réttarsalnum og var sektaður um tæplega níu þúsund krónur. Þá má hann ekki keyra bíl á Nýja-Sjálandi næstu sex mánuðina.

Fjöldinn allur af aðdáendum var mættur fyrir utan réttarsalinn til að berja goðið augum og gaf Chris sér tíma til að tala við aðdáendur og gefa þeim eiginhandaráritanir.

Brosmildur.
Heppnir aðdáendur.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.