Jól

Jóladagatal - 13. desember - Samstæðuspil

Grýla skrifar

Systkinin Hurðaskellir og Skjóða ætla að föndra eitthvað skemmtilegt á Vísi á hverjum einasta degi fram að jólum. 

Skjóða er að vísu með tíu tröllaputta og Hurðaskellir er algjör jólasveinn en þau hafa ótrúlega gaman að því að föndra og láta því ekki ónákvæmni eða brussugang á sig fá. Um leið og þau föndra kenna þau öðrum að gera jólaskraut, piparkökuhús, jólakort og fleira sniðugt.

Það er siður hjá mörgum fjölskyldum að spila mikið á jólunum. Í dag búa Hurðaskellir og Skjóða til samstæðuspil. Kíktu á þáttinn og styttu biðina fram að jólum með því að spila skemmtilegt spil.

Klippa: 13. desember - Jóla­daga­tal Hurða­skellis og Skjóðu 2014

Frekari leiðbeiningar má finna á heimasíðunni jolasveinar.is og Facebook-síðu jólasveinanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×