Lífið

Trompaðist á setti

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan Rosie Perez fer ófögrum orðum um söngkonuna Jennifer Lopez í æviminningum sínum Handbook for an Unpredictable Life sem kemur út 25. febrúar.

Rosie og Jennifer kynntust árið 1991 í áheyrnarprufum fyrir dansara í þáttinn In Living Color. Rosie var danshöfundur í þáttunum og segist hafa sannfært kynninn Keenan Ivory Wayans um að velja Jennifer í hlutverk svokallaðrar „Fly Girl“.

Jennifer hefur ávallt haldið því fram að Keenan hafi uppgötvað hana en Rosie segir það ekki satt. Þá segir hún jafnframt að Jennifer hafi verið óbærileg á setti.

„Allar stelpurnar komu inn á skrifstofu mína og kvörtuðu yfir því að hún væri að ráðskast með búninga, förðun og mig til að vernda sína hagsmuni," skrifar Rosie í bókina. Hún bætir við að Jennifer hafi tjúllast í framhaldinu og rifist heiftarlega við sig.

Jennifer Lopez neðst í miðjunni árið 1992 ásamt Lisa Marie Todd, Carrie Ann Inaba, Cari French og Deidre Lang. Þær skipuðu „Fly Girl“-hópinn.
„Þú níðist á mér og aðeins mér á hverjum einasta, helvítis degi! Á hverjum helvítis degi! Ég vinn baki brotnu og þú ýtir mér alltaf til hliðar og kemur fram við mig eins og skít! Ég veit að ég er góð. Ég er betri en þessar stúlkur og þú veist það," heldur Rosie fram að Jennifer hafi sagt við sig.

Jennifer hætti í þáttunum eftir tvær seríur og leitaðist eftir frama í leiklist. Rosie segir hana þá hafa haldið áfram að tala illa um sig í Hollywood.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.