Púað á Ólöfu Jöru í söngleik í New York 11. nóvember 2014 08:00 Ólöf Jara Skagfjörð leikkona Vísir/Vilhelm
Ólöf Jara Skagfjörð leikkona útskrifaðist úr leiklistarskólanum Circle in the Square Theatre School í New York í byrjun júní. Í október fékk hún hlutverk í söngleiknum Wanda‘s World á vegum leikhópsins Laughing Giraffe Productions, en það var fyrsta verkefnið sem hún fær greitt fyrir síðan hún flutti til New York. „Þetta er söngleikur fyrir börn á miðstigi í grunnskóla sem fjallar um stelpu sem er strítt í skólanum af því að hún er með fæðingarblett sem þekur stóran part af andlitinu,“ segir Jara. Októbermánuður var tileinkaður baráttu gegn einelti og fór leikhópurinn í tveggja vikna ferðalag um Massachussetts og New York-fylki. „Gaman að segja frá því að ég leik vondu stelpuna í leikritinu og í lok leikritsins á einni sýningunni fengu krakkarnir nóg af þessari illsku minni og púuðu hástöfum á mig og einn strákur æpti: „You‘re mean!“ (þú ert vond). Ég tók því að sjálfsögðu sem hrósi og greinilegt að þau náðu boðskapnum í sýningunni,“ segir Jara.Ólöf Jara í hlutverki sínu sem vonda stelpan í söngleiknumVísir/einkasafnSýningar gengu mjög vel og segir hún það mikilvægt að geta vakið athygli á þessu viðkvæma málefni á þann hátt sem nær til krakkanna og kennaranna. Sýningin er nú á fjölunum í leikhúsi Off-Broadway á Times Square einu sinni í viku og mögulega halda þau í annað ferðalag eftir áramót. Það er því nóg að gera hjá leikkonunni ungu, en að auki er hún með sinn eigin leikhóp. „Ég stofnaði leikhópinn Exodus Theatre Company í sumar ásamt kærastanum mínum, en hann leikur einnig með mér í fyrrnefndum söngleik. Við settum upp sýningu í september sem seldist upp og erum núna að vinna í næsta verkefni sem mun, ef allt gengur upp, verða sýnt í febrúar eða mars,“ segir Jara. Aðspurð hvort hún sé nú farin að lifa á leiklistinni játar hún því, en segir launin þó engan veginn duga fyrir kostnaðinum úti. „Ég á langt í land með að hafa þetta að aðalvinnu en þetta er gott skref í áttina. Einhvers staðar verður maður að byrja,“ segir Jara. Hún kemur til Íslands í desember og heldur jól hér í fyrsta sinn í þrjú ár. „Ég hlakka mikið til, en ég hlakka mest til þess að borða skötu.“
Mest lesið Liam Payne úr One Direction látinn Lífið „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Lífið „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Lífið Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Lífið Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2024 Lífið „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ Tónlist Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Lífið Er alltaf hrædd Lífið Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Lífið Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Lífið Fleiri fréttir Cheryl kvartar yfir fjölmiðlaumfjöllun um Liam Payne Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Litfögur íbúð með mikinn karakter Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2024 Níu ára og notar hestastudda sálfræðimeðferð til að komast yfir hamfarirnar Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Bingó í beinni á sunnudag Er alltaf hrædd One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Frumkvöðull í Detroit teknói í Gamla bíó í nóvember Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Liljan er vinsælasta lagið á Dalvík Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Liam Payne úr One Direction látinn Páll Óskar kveikti í kofanum Elskar að vera á níræðisaldri og eiga ungbarn Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Kveiktu í dansgólfinu í Iðnó „Bullandi stífir í því að halda uppi þessu afneitunarhagkerfi sem við búum í“ „Ekki þurrt auga í salnum“ Krúttlegasti innbrotsþjófur landsins Sjá meira