Lífið

Kim Kardashian les upp úr Fifty Shades of Grey

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kim er á allra vörum.
Kim er á allra vörum. vísir/getty
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian ferðast um Ástralíu þessa dagana til að kynna nýja ilminn sinn, Fleur Fatale. Hún heimsótti útvarpsþáttinn Heidi, Will and Woody á 92,9FM í Perth og tók að sér athyglisvert verkefni.

Nektarmyndir af Kim sem birtust í tímaritinu Paper í síðustu viku vöktu gríðarlega athygli og töluðu margir um að þær myndu leggja internetið í rúst. Stjórnendur ástralska útvarpsþáttarins vildu hins vegar kanna hvort Kim gæti lagt útvarpið í rúst með því að lesa upp úr erótísku bókinni Fifty Shades of Grey.

Kim samþykkti þetta en búið var að skipta út klúru orði fyrir nafn ilmvatns hennar eins og heyra má í myndbandinu hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.