Lífið

Komu Kringlugestum rækilega á óvart

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Aðstandendur lagsins Lífið kviknar á ný sem Sigga Eyrún flytur í úrslitum Eurovision-keppninnar í Háskólabíói í kvöld komu gestum Kringlunnar skemmtilega á óvart.

Þeir buðu upp á svokallað "flash mob" í verslunarmiðstöðinni þar sem einn byrjaði að tromma og síðan byrjuðu fleiri og fleiri að dansa sérstakan dans sem saminn var fyrir lagið.

Myndbandið af atvikinu, sem fylgir með fréttinni, er frumsýnt á Vísi og óhætt að fullyrða að það segi meira en mörg orð. Góða skemmtun!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×