Lífið

"Þetta er eins og Eurovision- keppni Norðurlandsins“

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Íþróttahúsinu eru breytt í tónleikahöll en keppnin kostar um þrjár milljónir króna.
Íþróttahúsinu eru breytt í tónleikahöll en keppnin kostar um þrjár milljónir króna. mynd/einkasafn
„Við leggjum allt í þetta og þetta kostar um þrjár milljónir,“ segir Tómas Guðjónsson, formaður Nemendafélagsins NFL, í framhaldsskólanum á Laugum, en söngvakeppni skólans, Tónkvísl, fer fram um helgina og er ein mikilfenglegasta söngvakeppni landsins. Þó svo að einungis séu um 120 nemendur í skólanum sækja að jafnaði um sex hundruð manns söngvakeppnina sem haldin er í íþróttahúsinu. „Við breytum íþróttahúsinu í tónleikahöll og það kemur fólk alls staðar að,“ bætir Tómas við.

Það eru ekki eingöngu framhaldsskólanemar sem etja kappi í söng því grunnskólarnir í kring taka einnig þátt. „Þetta eru í raun tvær keppnir. Tólf keppendur í framhaldsskólakeppninni og tólf keppendur úr grunnskólunum.“ Keppendurnir í grunnskólakeppninni eru úr Vopnafjarðarskóla, Borgarhólsskóla, Þingeyjarskóla, Reykjahlíðarskóla og grunnskólanum á Þórshöfn og eru þeir allir í grennd við skólann.„Grunnskólinn á Þórshöfn er lengst frá okkur eða í um tveggja klukkustunda akstursfjarlægð.“

Daníel Smári Magnússon vann keppnina í fyrra með laginu More Than A Feeling með hljómsveitinni Boston.mynd/einkasafn
Tónkvísl er einn stærsti viðburðurinn sem fer fram í sveitinni en fyrir þá sem ekki vita er framhaldskólinn staðsettur á Norðurlandi, á milli Akureyrar og Húsavíkur. „Viðburðurinn er mjög vel sóttur og er einn mesti menningarviðburðurinn í Þingeyjarsýslunni.“

Umfang keppninnar er mikið, en eins og sagt er frá hér að framan er íþróttahúsinu breytt í tónleikahöll og er keppnin tekin upp á átta myndavélar og gefin út á DVD-disk. „Þetta er að jafnaði jólagjöfin í ár í Þingeyjarsýslunni.“

Tómas Guðjónsson formaður NFLmynd/einkasafn
Miðað við höfðatölu er skólinn mjög söngelskur og eru atriðin mjög fjölbreytt. „Við höfum getið af okkur Mugisona og Birgittur Haukdal,“ segir Tómas um hæfileikasöguna. Húshljómsveitin er skipuð nemendum í skólanum sem hefur æft af kappi síðan í október. „Meðlimir sveitarinnar koma alls staðar að af landinu en yngsti meðlimurinn er sextán ára gamall og leikur á bassa.“

„Við gerum ráð fyrir yfir sex hundruð manns en keppnin hefst klukkan 19.30.“ Til gamans má geta að skólinn hefur aldrei unnið lokakeppnina. „Við erum samt mjög bjartsýn í ár.“ Daníel Smári Magnússon vann keppnina í fyrra með laginu More Than A Feeling með hljómsveitinni Boston.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.