Bíó og sjónvarp

Fín lína milli húmors og alvöru

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Verkefnið sem herdeildin fær er ekki auðvelt að leysa.
Verkefnið sem herdeildin fær er ekki auðvelt að leysa.
Kvikmyndin The Monuments Men verður frumsýnd á Íslandi á morgun en hún er byggð á sannri sögu Roberts M. Edsel um stórfenglegustu fjársjóðsleit sögunnar.

Í seinni heimsstyrjöldinni var heil herdeild send ásamt listaverkasérfræðingum til Þýskalands með það verkefni að bjarga listaverkum úr klóm nasista og koma þeim í réttar hendur. Frá upphafi bendir allt til þess að verkefnið sé dauðadæmt; listaverkin á óvinagrundu og þýska hernum var skipað að eyða öllu ef Þýskaland tapaði stríðinu. Þessir hermenn ásamt sjö safnstjórum, safnvörðum og sérfræðingum um listasögu, sem allir kannast betur við Michelangelo en M-1-riffla, eiga að ljúka þessu áhættusama verki. Hermennirnir og fyrrnefndir félagar þeirra úr listageiranum hætta lífi og limum til þess að vernda og bjarga mikilvægustu og dýrmætustu listaverkum mannkynssögunnar.

Tökur á myndinni hófust í byrjun mars í fyrra í Potsdam í Þýskalandi og lauk í Rye í Austur-Sussex í Bretlandi í lok júní. Þúsundir aukaleikara komu að myndinni þar sem hernaðarsenurnar eru ansi umfangsmiklar.

Upphaflega átti að frumsýna myndina 18. desember í fyrra en frumsýningunni var seinkað. Ástæðan var að eftirvinnslan dróst því erfitt var að finna jafnvægi milli húmors og þess alvarlega máls sem fjallað er um.

George Clooney leikstýrir myndinni en hann er einnig í einu aðalhlutverkanna. Með sér í lið fær hann sannkallað stórskotalið Hollywood-leikara en í öðrum hlutverkum eru Matt Damon, Bill Murray, John Goodman, Jean Dujardin, Bob Balaban, Hugh Bonneville og Cate Blanchett.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.