Ástin gaf honum kjarkinn Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 13. mars 2014 12:00 Spéfuglinn James Corden leikur Paul Potts í myndinni.
Kvikmyndin One Chance er frumsýnd á Íslandi á morgun en hún er byggð á ævi söngvarans Paul Potts sem sigraði í þáttunum Britain‘s Got Talent árið 2007. Áður en Paul sló í gegn var hann utangarðs í litlum iðnaðarbæ. Hann söng hástöfum öllum stundum, sem öðrum strákum í bænum þótti tilefni til að leggja hann í hrottalegt einelti. Hann neyddist líka til að sitja undir háðsglósum föður síns í tíma og ótíma, sem vildi að hann færi að vinna með hinum körlunum í kolanámunum. Þegar hann varð eldri kynntist hann stúlkunni Julie-Ann á spjallsvæði á internetinu en þau hittust fyrst augliti til auglitis í febrúar árið 2001. Þá öðlaðist Paul kjark til að elta drauminn um að þenja raddböndin á sviði. Paul og Julie-Ann gengu í það heilaga í maí árið 2003. Það er spéfuglinn og leikarinn James Corden sem fer með hlutverk Pauls, Hann er vel þekktur í Bretlandi og gerði garðinn fyrst frægan þegar hann skrifaði handritið og lék í skemmtiþáttunum Gavin & Stacey. Fyrir frammistöðu sína í þáttunum hlaut hann bresku BAFTA-verðlaunin fyrir besta gamanleik. Þá hefur hann einnig stjórnað þáttunum A League of Their Own og var kynnir á BRIT-verðlaunahátíðinni fyrir stuttu. Í öðrum hlutverkum eru Alexandra Roach, Julie Walters, Colm Meaney og Mackenzie Crook.Sló alla út af laginu Það bjóst enginn við því að Paul Potts gæti sungið þegar hann tók þátt í Britain‘s Got Talent.Fréttablaðið/GettyStjarna er fæddPaul Potts fór í áheyrnarprufu í hæfileikaþættinum Britain‘s Got Talent árið 2007 og bjóst enginn við miklu af söngvaranum. Hann söng Nessun dorma og sló vægast sagt í gegn. Dómararnir urðu steinhissa yfir röddinni sem hann bjó yfir og áhorfendur stóðu upp og klöppuðu eftir flutninginn. Horft hefur verið á atriðið á YouTube yfir 120 milljón sinnum og er það eitt af hundrað mest skoðuðu myndböndum á síðunni síðan hún var stofnuð. Paul komst í undanúrslit í þættinum þar sem hann söng Time To Say Goodbye sem Andrea Bocelli gerði frægt. Hann komst í úrslitaþáttinn eftir að hann fékk flest atkvæði almennings í sögu þáttarins. Paul söng Nessun dorma í úrslitaþættinum, bar sigur úr býtum og hlaut hundrað þúsund pund í sigurlaun.)
Ísland Got Talent Mest lesið Ólafía Hrönn reyndist vera á bak við „stóra pokamálið“ Lífið Gyðjusamkoma með glæsilegum gellum Lífið Simmi Vill spilaði Skítakall við nýju kærustuna Lífið Leysir frá brandaraskjóðunni Lífið Biden móment hjá Nick Cave í Eldborg Lífið Tískudrottning og eigandi Drykk bar selja slotið Lífið Keppti við Prettyboitjokkó í kuldaskóm Lífið Nova klippir kaffiverðið Lífið samstarf Þurfti að vinda skyrtuna eftir tryllt gigg í Víetnam Tónlist Herbert Guðmunds og Prettyboitjokko gefa út lag Lífið Fleiri fréttir Donald Sutherland er látinn Heimaleikurinn vann til verðlauna í Ástralíu „Gaman hvað verið er að tala fallega um samstarfsfólkið mitt“ Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Gerard Butler á klakanum í enn eitt skiptið Íslenskur hryllingstryllir á Vestfjörðum vekur athygli í Tribeca Eltihrellirinn höfðar mál gegn Netflix Þýskur risi í samstarf við ACT4 um gerð Stóra Bróður Sjá meira