Lífið

Frumflytur lag með maltneskri Eurovision-stjörnu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hér eru Valgeir og Chiara í Þýskalandi síðasta sumar.
Hér eru Valgeir og Chiara í Þýskalandi síðasta sumar. Mynd/úr einkasafni
„Við Chiara erum búin að vera að vinna saman síðastliðin tvö ár og þetta er fjórða lagið sem við gerum saman,“ segir Valgeir Magnússon, umboðsmaður maltnesku Eurovision-stjörnunnar Chiara Siracusa. Hann frumflytur nýtt lag ásamt stjörnunni á Euro Fan Café í Kaupmannahöfn á sunnudag sem heitir Mermaid in Love. Örlygur Smári og Pétur Örn sömdu lagið ásamt Valgeiri.

„Samstarf okkar kom til þannig að ég var að túra með Heru Björk á milli tónlistarhátíða og Chiara var oft á sömu stöðum og við. Hún tók eftir því að Hera fékk betri þjónustu en flestir og sá að ég var duglegur að passa upp á hlutina. Einn daginn kom hún til mín og spurði hvort ég væri til í að sjá líka um sig,“ segir Valgeir sem var ekki sannfærður um að það gæti gengið upp.

„Ég hugsaði mig um í nokkrar vikur því ég sá ekki hvernig þetta myndi ganga upp þar sem Ísland og Malta eru á hvort á sínum endanum á Evrópu. Svo hugsaði ég: Þetta getur allt verið unnið í gegnum netið. Nú erum við búin að taka upp fjögur lög saman, sem við gerum þannig að við Öggi erum á FaceTime í stúdíóinu hennar á Möltu og biðjum hana að gera hitt og þetta. Svo fáum við sendan sönginn og Öggi klárar málið.“

Varðandi nýja lagið, Mermaid in Love, segir Valgeir það hafa orðið til í áföngum.

„Hugmyndina fékk ég þegar við vorum að spila saman í Þýskalandi síðasta sumar. Ég skrifaði niður nokkrar línur. Við Öggi hittumst svo nokkrum vikum síðar, töluðum aðeins um hugmyndina og hann kom strax með litla melódíu. Svo skoðuðum við þetta ekki neitt fyrr en fyrir tveimur vikum. Þá tókum við Pétur með okkur í sumarbústað og kláruðum lagið og fleiri lög sem við erum að ákveða hvað við gerum við.“


Tengdar fréttir

Farnir út að sigra í Eurovision

"Vitið þið hvað? Þetta eru síðustu tónleikarnir okkar áður en við fljúgum til Danmerkur til að sigra í Eurovision,“ sagði Heiðar Örn Kristjánsson, gítarleikari og söngvari í Pollapönki, við unga aðdáendur á Selfossi daginn áður en haldið var utan.

Þetta er gott flipp

Álitsgjafarnir Siggi Hlö, Rikki G, Heiðar Austmann og Friðrik Ómar sitja fyrir svörum






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.