Lífið

Eyddu mæðradeginum saman

Gwyneth Paltrow eyddi mæðradeginum með fyrrverandi eiginmanni sínum, Chris Martin. 
Nordicphotos/getty
Gwyneth Paltrow eyddi mæðradeginum með fyrrverandi eiginmanni sínum, Chris Martin. Nordicphotos/getty Vísir/Getty
Fyrrverandi hjónin Gwyneth Paltrow og Chris Martin eyddu mæðradeginum um helgina saman.

Parið tilkynnti á dögunum að það væri að skilja eftir tíu ára hjónaband en þau eiga saman tvö börn, þau Apple níu ára og Moses átta ára.

Fjölskyldan eyddi deginum saman á ströndinni við Malibu og litu út fyrir að vera hamingjusöm að sögn sjónarvotta.

Parið hefur gefið það út að skilnaðurinn sé í mestu vinsemd og þau munu halda áfram að hittast sem fjölskylda. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×