Lífið

Góðir dómar Ragnheiðar

Þau Þóra Einarsdóttir og Elmar Gilbertsson fá góða dóma.
Þau Þóra Einarsdóttir og Elmar Gilbertsson fá góða dóma.
Hróður óperunnar Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson hefur borist út fyrir landsteinana en hið virta breska óperurit Opera Now gefur verkinu fjórar stjörnur af fimm í nýlegum dómi.

Einnig fer gagnrýnandi fögrum orðum um höfundana, söngvara og listræna stjórnendur.

Ragnheiður hlaut góðar viðtökur er óperan var sýnd í Hörpu og voru áhorfendur vel á 13. þúsund.

Erlendir gestir eru þar á meðal sem útskýrir lofsamlega erlenda dóma en ofangreindur gagnrýnandi segir verkið eiga skilið að vera sýnt erlendis. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.