Handbolti

Umfjöllun: Ísland - Rússland 35-34 | Aron með sigurmarkið í lokin

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld. Mynd/NordicPhotos/Getty
Aron Pálmarsson tryggði Íslandi flottan sigur á Rússum í kvöld með mögnuðu marki undir lokin. Þetta var fyrsti leikur Íslands á æfingamóti fyrir EM sem hefst eftir rúma viku.

Fyrri hálfleikur var nokkuð skrautlegur. Íslenska liðið byrjaði leikinn með látum og var komið með fjögurra marka forskot, 6-2, eftir aðeins sex mínútur.

Sóknarleikurinn að rúlla mjög vel en talsvert basl á varnarleiknum. Varnarleikur Rússa líka lítið til að hrópa húrra fyrir og bæði lið nánast skoruðu að vild lengi vel.

Ísland náði mest fimm marka forskot í hálfleiknum, 10-5, en Rússar jöfnuðu, 14-14, og komust svo yfir, 15-16. Strákarnir okkar komu samt til baka og leiddu með einu marki í leikhléi, 19-18.

Ísland var skrefi á undan nær allan síðari hálfleik en missti tökin á lokamínútunum. Strákarnir sýndu karakter með því að koma til baka og þeir kláruðu leikinn manni færri.

Björgvin Páll varði 15 sekúndum fyrir leikslok og Aron skoraði svo markið glæsilega sem tryggði íslenska liðinu sigur í leiknum.

Frammistaða íslenska liðsins var betri en margan grunaði enda ansi stór skörð höggvin í íslenska liðið. Nú síðast meiddist Snorri Steinn og hann gat því ekki spilað í kvöld.

Það lögðu ansi margir hönd á plóg í sókninni sem var jákvætt. Aron fremstur í flokki og Þórir Ólafsson einnig magnaður. Skoraði flott mörk og gaf einnig góðar stoðsendingar. Hægri vængurinn lengstum mjög sterkur og skilaði átta mörkum í fyrri hálfleik.

Strákarnir klúðruðu þrem vítum í leiknum sem var dýrt. Varnarleikurinn þarfnast talsverðrar vinnu og þar sem hann var slakur var markvarslan ekki heldur upp á marga fiska. Björgvin steig þó upp á elleftu stundu.

Fínasta byrjun hjá liðinu í erfiðum undirbúningi þar sem mörgum spurningum er ósvarað. Það var aftur á móti jákvætt að sjá þá sem fá ábyrgðina að þeir mættu ákveðnir til leiks og með sjálfstraustið í lagi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×