Bíó og sjónvarp

Hasar gert hátt undir höfði

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Jackie hefur marga fjöruna sopið í heimi hasarmyndanna.
Jackie hefur marga fjöruna sopið í heimi hasarmyndanna. Vísir/Getty
Hasarmyndahetjan Jackie Chan tilkynnti í vikunni að alþjóðleg hasarmyndavika yrði haldin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Sjanghæ á næsta ári. Jackie er einn sá reynslumesti í hasarmyndabransanum og er með myndir á borð við Rush Hour, Shanghai Knights, The Spy Next Door og Forbidden Kingdom á ferilskránni.

Á kvikmyndavikunni verða þeir kvikmyndagerðarmenn heiðraðir sem hafa lagt hönd á plóginn í gerð hasarmynda í gegnum tíðina. Sérstök nefnd safnar saman hasarmyndum víðs vegar að úr heiminum og getur almenningur valið um hvaða myndir verða sýndar á hátíðinni. Þá verður einnig boðið upp á fyrirlestra þar sem farið er í saumana á tækninni sem notuð er til að búa til góða hasarmynd.

Jackie er nýkominn úr tökum á kvikmyndinni Dragon Blade en á meðal annarra leikara í myndinni eru John Cusack og Adrien Brody. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.