Lífið

Schoolboy hlustaði á Gísla Pálma

Baldvin Þormóðsson skrifar
Gísli Pálmi er ungur og upprennandi rappari.
Gísli Pálmi er ungur og upprennandi rappari. vísir/vilhelm
Secret Solstice-hátíðin fór fram um síðustu helgi og að sögn viðstaddra gekk hátíðin vonum framar.

Mörg stór nöfn í tónlistarbransanum komu fram á hátíðinni en á meðal stærstu tónlistaratriðanna var bandaríski rapparinn Schoolboy Q sem kom fram á lokakvöldinu.

Í myndskeiði á samfélagsmiðlinum Snapchat sem sýnir Schoolboy Q slappa af ásamt fylgdarliði sínu fyrir tónleika má heyra rapparann hlusta á kollega sinn, hinn íslenska og upprennandi rappara Gísla Pálma.

Í myndskeiðinu liggur Schoolboy í rúminu sínu og virðist kunna vel að meta lagið Swagalegt sem íslenski rapparinn gaf út fyrir rúmum tveimur árum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.