Íslenski boltinn

Ekki fengið á sig mark síðan Þóra samdi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
íris Dögg Gunnarsdóttir hélt hreinu fjórða leikinn í röð á móti Val.
íris Dögg Gunnarsdóttir hélt hreinu fjórða leikinn í röð á móti Val. vísir/Daníel
Íris Dögg Gunnarsdóttir, markvörður Fylkis, hélt enn á ný hreinu í fyrrakvöld þegar Fylkir vann 2-0 útisigur á Val í 6. umferð Pepsi-deildar kvenna.

Íris hefur haldið hreinu í öllum leikjum nema einum í sumar og það eru aðeins Íslandsmeistarar Stjörnunnar sem hafa skorað hjá henni. Nýliðar Fylkis sitja líka í 3. sæti deildarinnar og eru aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Stjörnunnar þegar þriðjungur er búinn af mótinu.

Fylkismenn ákváðu samt sem áður að semja við landsliðsmarkvörðinn Þóru B. Helgadóttur í byrjun júní. Íris Dögg var þá nýbúin að fá á sig þrjú mörk í tapleik á móti Íslandsmeisturum Stjörnunnar en hefur haldið marki sínu hreinu síðan fréttist af komu Þóru.

„Ég reyni helst ekki að hugsa um þetta. Ég tek bara einn leik í einu og vona það besta,“ sagði Íris Dögg í viðtali við Valtý Björn Valtýsson á Stöð 2 í gærkvöldi.

Nú eru liðnar 362 mínútur síðan Íris Dögg fékk síðast á sig mark í Pepsi-deildinni eða Borgunarbikarnum. Stjörnukonan MaeganKelly skoraði það mark sem og hin tvö sem Íris fékk á sig í Garðabænum.

„Það hefur verið rosalega góð hvatning til að skoða hlutina hjá sjálfri sér, gera sitt besta og auglýsa sig smá,“ segir hún sallaróleg í samtalinu við Valtý en Íris býst samt ekki við að vera mikið lengur hjá Fylki.

„Það má ekkert lið á Íslandi hafa tvo svona góða markmenn þannig það verður eitthvað að gerast,“ segir hún og brosir. Íris Dögg á því kannski bara tvo deildarleiki eftir með Fylki.

„Það getur vel verið að ég fari [þegar glugginn opnast]. Ég hef reynt að standa mig vel þannig að vonandi opnast einhverjir gluggar hjá mér. Ég vil halda mér í toppbaráttunni í Pepsi-deildinni en það hefur enginn haft samband ennþá. Mér líður vel hjá Fylki og ég vil ekki fara í neinum leiðindum en ég vil ekki missa af þessu tækifæri og sitja á bekknum það sem eftir er af sumrinu. Það kemur ekki til greina,“ segir Íris Dögg Gunnarsdóttir.

Fæst mörk á sig í leik í Pepsi-deildinni:

Íris Dögg Gunnarsdóttir, Fylki (3 mörk á sig/ 6 leikir) - 0,5

Sandra Sigurðardóttir, Stjörnunni (6/6) - 1,0

Sonný Lára Þráinsdóttir, Breiðabliki (6/6) - 1,0

Roxanne Kimberly Barker, Þór/KA (7/6) - 1,2

Oftast haldið hreinu í Pepsi-deildinni:

Íris Dögg Gunnarsdóttir, Fylki - 5 sinnum

Sonný Lára Þráinsdóttir, Breiðabliki - 4 sinnum

Sandra Sigurðardóttir, Stjörnunni - 3 sinnum

Roxanne Kimberly Barker,  Þór/KA - 2 sinnum


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×