Lífið

Byggir Simpsons-hús úr legó með syninum

Baldvin Þormóðsson skrifar
Feðgarnir eiga stórt verkefni fyrir höndum.
Feðgarnir eiga stórt verkefni fyrir höndum.
„Veðurspáin átti alveg sinn hlut í þessum kaupum,“ segir leikstjórinn Ragnar Hansson en hann festi kaup á glæsilegri Lego-útgáfu af hinu víðfræga Simpsons-húsi sem hann ætlar að dunda sér við að smíða ásamt syni sínum Hrappi.

„Við erum náttúrulega Simpsons-fjölskylda, ég er algjör Hómer,“ segir Ragnar en hann á einmitt einn son, tvær yngri stelpur og segist einnig hafa einn Flanders í sínu lífi þar sem ein dóttirin bendir alltaf á Flanders-fígúruna og kallar hana Gunna frænda.

„Það er náttúrulega Gunnar Hansson, bróðir minn,“ segir hann og hlær. Ragnar er mikill aðdáandi Simpsons-þáttanna en þættirnir hófu göngu sína þegar Ragnar var á aldur við son sinn Hrapp. „Ég ólst bara upp við þetta,“ segir Ragnar. „Þetta er þáttaröð sem hefur mótað húmor minnar kynslóðar. Ég hef verið að gera mikið af gríni og gamanþáttum sjálfur og það kemur alveg fyrir að maður fattar eftir eitthvert verkefni, vó, ég held ég hafi ómeðvitað stolið þessu frá Simpsons.“

Ragnar hefur einnig gaman af klassískum Lego-smíðum en hann hefur ekki sjálfur átt leikfang af því tagi frá því að hann var ungur. „Ég viðurkenni að ég hef kannski getað verið smá pirrandi í kringum son minn þegar hann er að byggja, að hjálpa honum,“ segir Ragnar. „En nú get ég endurgoldið honum greiðann með því að hann byggi með mér.“

Feðgarnir Homer Simpson (Ragnar) ásamt syninum Bart (Hrappi). Feðgarnir eiga stórt verkefni fyrir höndum.
„Worst. Movie. Ever“

Þann 17. desember árið 1989 var fyrsti þátturinn um Simpson-fjölskylduna sýndur.

552 þættir í 25 seríum hafa síðan þá verið framleiddir.

150 mismunandi persónur hafa birst í þáttaröðunum.

Ragnar Hansson segir Comic Book Guyvera í uppáhaldi. „Mér finnst svo gaman að tala og skrifa eins og hann,“ segir Ragnar. „Worst. Movie. Ever.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.