Matur

Sweet chili - kjúklingasúpa með íslensku grænmeti

Uppskeruna úr garðinum má nota í staðinn fyrir núðlurnar í hefðbundinni núðlusúpu með kjúklingi.
Uppskeruna úr garðinum má nota í staðinn fyrir núðlurnar í hefðbundinni núðlusúpu með kjúklingi. mynd/heilsumamman.com

Hér er á ferðinni dæmigerð núðlusúpa með taílensku yfirbragði nema ég nota íslenska grænmetið í staðinn fyrir núðlurnar. Fyrir íhaldssama má auðvitað bara bæta núðlum út í áður en súpan er borin fram,“ útskýrir Oddrún Helga Símonardóttir, en hún skellti í rjúkandi kjúklingasúpu með glænýju íslensku grænmeti fyrir lesendur.

Oddrún heldur úti matarblogginu heilsumamman.com þar sem hún deilir hollum og girnilegum uppskriftum. Þessa súpu segir hún afar þægilega í kvöldmat fjölskyldunnar.

„Súpan er mjög fljótleg og getur verið komin á borðið 20 mínútum eftir að undirbúningur hefst, ef kjúklingurinn er tilbúinn, en hún verður samt enn betri ef hún fær að standa aðeins eftir að hún er tilbúin.“

Matgæðingur Oddrún Helga heldur úti matarblogginu heilsumamman.com.

Sweet chili-kjúklingasúpa úr glænýju íslensku grænmeti fyrir 4 - 5

1 tsk. kókosolía

3-4 gulrætur

½ hvítkálshaus

½ rauð paprika

½-1 haus spergilkál  (eftir stærð og smekk)

2 cm bútur af engifer eða   u.þ.b. 1 msk. rifinn engifer

3 msk. kjúklingakraftur

1 msk. fiskisósa

1 msk. sweet chili sósa

Salt og pipar

2 kjúklingabringur eða magn  eftir smekk. 

1.5 l vatn



Aðferð:

1. Skerið bringurnar í bita. Steikið á pönnu og kryddið eftir smekk eða grillið þær heilar. Þessi súpa er tilvalin fyrir afganga.

2. Hitið kókosolíu í potti og léttsteikið gulrætur og papriku.

3. Rífið engiferið út í pottinn. (Ef þið rífið það með rifjárni losnið þið við „hárin“. 

4. Bætið við vatni, kjúklingakrafti, fiskisósu og sweet chili-sósu. Reynið að velja sósu með litlu sykurmagni en hér má líka nota 1 msk. af hlynsírópi eða 1 msk. af kókospálmasykri og krydda með smá chili-kryddi. 

5. Bætið hvítkálinu og spergilkálinu út í og leyfið súpunni að malla í 10 mín. 

6. Bragðbætið með salti og pipar. 

Það er gott að bera súpuna fram með smátt söxuðum vorlauk, fersku kóríanderi og jafnvel salthnetum eða kasjúhnetum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.